ГлавнаяИсполнителиÁrstíðir (Arstidir)Síðasta Kveðjan
название:

Síðasta Kveðjan


автор:

Árstíðir (Arstidir)


рейтинг: ★★★★★ / 5 / 955 просмотров
Kúrir um sína óskasteina 
áfram uns ekkert amar að 
vonar að þessi sé sú eina 
en hefur ekkert að segja um það 

Áhyggjulaus um eigin frama 
tónlist mun lækna ógróin sár 
finnst eins og alltaf verði þér sama 
en hví falla þá þessi tár 

Veslings hjartað mitt 
verðuru þú mér að aldurtila 
niðurdreginn þar sem enginn sér 
tómarúmið þitt 
leysist upp að morgni því að 
þú getur gert hvað sem er 
og ég vona að kveðja mín komist til skila 

Vindurinn lætur nú í sér heyra 
þungur veturinn togar í bjartsýnismann 
heldur að varla þoli hann meira 
hví kom þetta fyrir hann 

Sumarið það kom ekki heldur 
lífið hefur svikið sinn góða son 
daufur virðist nú hans vonareldur 
og nú er elding hans eina von 

Veslings hjartað mitt 
verður þú mér að aldurtíla 
Niðurbrotinn þar sem enginn sér 
Tómarúmið þitt 
leysist upp að morgni því að 
þú getur gert hvað sem er 
og ég vona að kveðjan mín komist til skila

written by Gunnar Már Jakobsson

Послушать/Cкачать эту песню
Mp3 320kbps на стороннем сайте
А как ты думаешь, о чем песня "Síðasta Kveðjan" ?
2010-2020 © WebKind.Ru Тексты песен